Nafnasamkeppni á götum í nýrri íbúðarbyggð

Á árinu 2025 er gert ráð fyrir því að fara af stað í gatnagerð og fráveitu í nýrri íbúðarbyggð í Þingborg.

Í gildandi deiliskipulagi nýrrar íbúðarbyggðar í Þingborg er gert ráð fyrir tveimur götum sem eru skilgreindar sem gata A og gata B.

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að efna til samkeppni um nafn á tveimur götum í nýrri íbúðarbyggð í Þingborg.

Tillögum skal skila fyrir kl. 12:00 föstudaginn 28. mars. inn með því að fylla inn í rafrænt form hér.

Sveitarstjórn mun velja nöfn á göturnar útfrá innsendum tillögum á fundi sveitarstjórnar þann 1. apríl 2025. Veitt verður viðurkenning fyrir þær tillögur sem sveitarstjórn velur.

Vinsamlegast skrifaðu tillögur að götuheitum hér fyrir neðan ásamt stuttum texta sem skýrir tillöguna t.d örnefni í nágrenni eða annað.

captcha