- Fréttir
- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf og menning
- Flóahreppur
- Hafa samband
- English
- Viðburðadagatal
Flóaskóli
Flóaskóli, 803 Selfoss. Símar 486-3460, 486-3360
Skólastjóri: Þórunn Jónasdóttir GSM 771 8342 thorunn@floaskoli.is
Flóaskóli tók til starfa haustið 2004 við sameiningu þriggja grunnskóla í þremur sveitarfélögum: Gaulverjaskóla í Gaulverjabæjarhreppi, Villingaholtsskóla í Villingaholtshreppi og Þingborgarskóla í Hraungerðishreppi. Flóaskóli er rekinn af sveitarfélaginu Flóahreppi í Árnessýslu og þjónar íbúum hans. Í byrjun var skólinn ætlaður nemendum í 1.-7. bekk en haustið 2009 hófu nemendur í 8. bekk nám við skólann og vorið 2012 var fyrsti 10. bekkurinn útskrifaður frá skólanum.
Almenn markmið fyrir starfið í Flóaskóla voru mótuð vorið 2004 af undirbúningsnefnd um stofnun skólans og í nánu samstarfi við fólkið í samfélaginu. Þessi markmið eru að miklu leyti enn í gildi en samkvæmt þeim eru væntingar að loknu námi í Flóaskóla:
Leikskólinn Krakkaborg
Þingborg, 803 Selfoss. Símar 480-0151
Leikskólastjóri: Sara Guðjónsdóttir sara@floahreppur.is
Leikskólinn Krakkaborg hóf starfsemi í Villingaholtsskóla árið 1982 og stóðu þá foreldrar að rekstri leikskólans. Árið 1996 flutti leikskólinn í félagsheimilið Þingborg. Hraungerðishreppur og Villingaholtshreppur voru rekstraraðilar frá 1996 fram til ársins 2004 en þá kom Gaulverjabæjarhreppur inn í reksturinn. Í ágúst 2004 flutti leikskólinn í grunnskólahúsnæðið í Þingborg. Árið 2015 var tekið í notkun stærra og endurbætthúsnæði í Þingborg. Þar er nú rekinn þriggja deilda leikskóli fyrir nemendur á aldrinum 9 mánaða til 6 ára. Rekstraraðili í dag er Flóahreppur. Leikskólinn hefur aðgang að íþróttasal félagsheimilisins í Þingborg. Lóðin er stór og með fjölbreyttu umhverfi þar sem áhersla er lögð á að nýta náttúruna sem best.
Hugmyndafræðin
Til að uppfylla sett markmið aðalnámskrár leikskóla, starfar leikskólinn Krakkaborg eftir Framfarastefnu heimspekingsins John Dewey. Hann segir að þroski barnsins stjórnist af tvennu: umhverfinu og meðfæddri þörf þess til þroska. Lögð er áhersla á að efla gagnrýna og skapandi hugsun sem kveikir áhuga og leiðir til skýrrar hugsunar. Hann vildi að börnin fengju tækifæri til að læra með því að rannsaka og framkvæma sjálf. Dewey lagði áherslu á að leikurinn væri frumafl í þroska barnsins og sú leið sem barnið notar til að læra. Í leik öðlast barnið reynslu af samskiptum sínum við önnur börn sem leiðir til frekari félagslegrar færni. Í Krakkaborg er lögð rík áhersla á leik barna og skapandi starf.