- Fréttir
- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf og menning
- Flóahreppur
- Hafa samband
- English
- Viðburðadagatal
Vatnsveita er rekin á vegum sveitarfélagsins í samvinnu við Árborg. Vatnsveitan nær yfir allt sveitarfélagið og markmið hennar er að geta þjónustað alla notendur á svæðinu sem þess óska varðandi neysluvatn. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands annast reglubundið eftirlit með vatnsveitunni skv. reglugerð um neysluvatn.
Vatnsveitan starfar eftir gildandi lögum og reglugerðum um vatnsveitur sveitarfélaga, einnig eftir reglugerð um neysluvatn og reglugerð um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla.
Tengigjald við Vatnsveitu Flóahrepps er samkvæmt auglýstri gjaldskrá og byggir á áætluðum kostnaði. Gjaldskrána má nálgast hér að neðan.
Skilyrt er að tenging sé framkvæmd af starfsmanni á vegum Flóahrepps.
Eftir að umsókn berst og hefur verið samþykkt er reikningur sendur á netbanka umsækjanda.
Reikningur byggir á gjaldskrá og áætluðum kostnaði útfrá upplýsingum frá umsækjanda og starfsmönnum Vatnsveitu Flóahrepps.
Athugasemdir vegna reiknings berist á skrifstofu Flóahrepps.
Mikilvægt er að íbúar og gestir horfi á vatnið sem tæmandi auðlind sem ber að fara sparlega með.
Verði íbúar varir við þrýstingsleysi eða annað skal hafa samband við skrifstofu Flóahrepps eða vaktsíma Vatnsveitu.