UTU flutt í nýtt húsnæði

Hverabraut 6
Hverabraut 6

Í upphafi þessa mánaðar flutti embætti byggingar- og skipulagsfulltrúa skrifstofu sína í nýtt og glæsilegt hús að Hverabraut 6 á Laugarvatni. Húsnæðið er í eigu Bláskógabyggðar og var gamla Smíðahúsið á Laugarvatni fyrirmyndin að nýja húsnæðinu. Enn á eftir að ganga frá lóðinni og aðkomu að húsnæðinu en það verður gert í sumar.

Hlökkum til að taka á móti ykkur í nýju húsnæði.

https://www.utu.is/tilkynningar/vid-erum-flutt-i-nytt-husnaedi-a-laugarvatni/ 

Starfsfólk UTU