- Fréttir
- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf og menning
- Flóahreppur
- Hafa samband
- English
- Viðburðadagatal
Myndlistarverkið Undirliggjandi minni verður sýnt í félagsheimilinu Félagslundi í Flóahreppi frá 5. til 20. október 2024. Opið verður daglega frá kl. 15.00 til 19:00 og eftir samkomulagi, sími: 661-0146. Sýningaropnun 5. október kl. 15.00. Allir velkomnir.
Undirliggjandi minni er leikið kvikmyndaverk sem byggt er á æskuminningum þriggja einstaklinga sem ólust upp í Flóahreppi, áður Gaulverjabæjarhreppi. Bernskuminningar liggja oft á mörkum þess ómeðvitaða, það er ekki alltaf ljóst hvað er frásögn annarra og hvað er eigin upplifun. Það geta verið ljósmyndir, staðir eða hlutir sem bera með sér frásagnir og sögur sem eru forsendur eigin minninga. Þegar grannt er skoðað eru eigin minningar til staðar, tilfinningaleg skynjun umhverfisins. Hvert er samband innri og ytri veruleika? Persónulegur reynsluheimur er viðfangsefni verksins en jafnframt hvar hverfulleiki og mörk minninga liggja.
Þátttakendur:
Guðjón Helgi Ólafsson frá Ásgarði
Valdimar Elí Viðarsson
Anný Ingimarsdóttir frá Vorsabæjarhjáleigu
Ottó Ingi Annýjarson
Margrét Jónsdóttir frá Syðri-Velli
Kristjana Ársól Stefánsdóttir
Ásgerður Saga Stefánsdóttir
Minningar þátttakendanna tengjast á áhugaverðan hátt í fjósum tímans um og eftir 1970, þar sem miklar breytingar áttu sér stað í búskaparháttum. Upplifanir af bústörfum og heimilisfólki, kúm, fjósaköttum og músum vega þungt í huga barnsins. Þannig er fjósið ákveðin þungamiðja verksins og var að hluta kvikmyndað í fjósinu í Gaulverjabæ. Svið kvikmyndarinnar er jafnframt utandyra, á stöðum sem tengjast eigin minningum þátttakenda , á heimabæjum og oftast við aðstæður þar sem hús, munir og fólk er horfið af vettvangi þess viðfangsefnis sem fjallað er um.
Einstaklingarnir þrír, sem eru uppspretta verksins, leika einnig í kvikmyndinni ásamt börnum sem þeim tengjast, þeirra eigin börn eða þeim nákomin. Börnin eru miðlar inn í bernsku fullorðna fólksins í verkinu. Þau framkalla hugmyndir um framtíðina með viðveru sinni, ásamt því að vera útvíkkun þeirra sjálfs, eigin minninga þess fullorðna.
Félagsheimilið Félagslundur er hluti af sögusviði verksins, þar sem það hefur verið samverustaður þessa samfélags í langan tíma. Það er mikilvægur þáttur verksins að sýna það í tengslum við staðhætti og uppruna þeirra frásagna sem eiga sér stað í verkinu. Undirliggjandi minni er skipt upp í þrjár kvikmyndir: Djúpur rauður, Mjúkur brúnn og Léttur grænn sem mynda samhangandi þrískipt kvikmyndarými. Tími og rými minninganna færast á milli kvikmyndanna þar sem ólík augnablik upplifana skarast og skapa nýja rýmisheild í Félagslundi.
Ólafur Sveinn Gíslason lauk námi úr skúlptúrdeild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands árið 1983 og var við nám við Listaháskólann í Hamborg frá 1983 -1988. Eftir nám starfaði hann að myndlist í Þýskalandi til ársins 2009, að verkefnum sem hafa verið sýnd í galleríum, listasöfnum og í opinberu rými víða í Evrópu og annars staðar. Það sem helst einkennir verk hans er hin félagslega vídd þar sem málefni og staðir eru mikilvægur grunnur. Einstaklingar sem notendur rýma er viðfangsefni út frá málefnum samfélagsins og listrænum nálgunarleiðum. Ólafur starfaði sem prófessor við Listaháskóla Íslands frá 2007 til 2016. Einnig hefur hann haldið fyrirlestra og kennt við listaháskóla víða í Evrópu.
Verkefnið er styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Myndstefi, Myndlistarsjóði og Flóahreppi.
English
The project Underlaying Memory, will be exhibited in the community canter Félagslundur in Flóahreppur from the 5th – 20th of October 2024. Open daily from 15:00 – 19:00 and by agreement: 661-0146. Exhibition opening October 5th at 15:00 – 19:00.
Underlaying Memory, is an acted film project which builds on childhood memories of three individuals which grew up in Flóahreppur, formerly Gaulverjabæjarhreppur.
Childhood memories often lay on the boundary of the subconscious, it is not entirely clear what is another person’s narration and what is one’s own experience. It can be photographs, places or objects which embody a narration and stories, which are the premise of one’s own memories. Upon a close look one’s own memories are present, through a subconscious perception of one’s environment. What is the relationship between an inner and outer reality? Personal experiences are the subject of this work as well as the fleetness of memory and where its border lays.
Participants:
Guðjón Helgi Ólafsson from Ásgarður
Valdimar Elí Viðarsson
Anný Ingimarsdóttir from Vorsabæjarhjáleiga
Ottó Ingi Annýjarson
Margrét Jónsdóttir from Syðri-Vellir
Kristjana Ársól Stefánsdóttir
Ásgerður Saga Stefánsdóttir
The participants memories connect in an interesting way in the cow sheds of around 1970, when many changes occurred in farming practices. Experiences of farm work and households, cows, barn cats and mice weigh heavily in a child’s mind. The cow shed is a certain canter of the project and was partly filmed in the cow shed at Gaulverjabær. The stage of the film is also outdoors, in places which connect the memory of the participating individuals, in their homesteads and often in a situation where houses, objects and people no longer exist in the subject of the film.
The three individuals, which are the source of the project, also act in the film along with children which are connected to them, their own children and children close to them. The children are a vehicle into the childhood of the adults in the film. They elicit ideas about the future through their presence, and also function as an expansion of the adult-self in the film, the individual memory of the adults.
The community canter Félagslundur, is a part of the project’s scene, as it has been a social meeting place of the community for a long time. It is an important part of the work to show it in connection with the site of the stories which are told in the film. Underleying Memory is divided into three films: Deep red, Soft brown and Light green which comprise a coherent three part film space. The time and space of the memories move between the films where different moments of experiences create a new entity in the community canter Félagslundur.
Ólafur Sveinn Gíslason graduated from the sculpture department of the Iceland Arts and Crafts College in 1983 and studied at the Hochschule für bildende Künste in Hamburg from 1983 – 1988. After his studies he worked as an artist in Germany until 2009. His work has been shown in galleries, art museums and in public space around Europe and elsewhere. What mostly characterizes his work is the social dimension where issues and places are an important foundation. Individuals as the users of spaces are a topic through the perspective of the community and artistic approaches. Ólafur was a professor at the Iceland Academy of the Arts from 2007 – 2016. He has also held lectures and taught at Art Universities in Europe.