- Fréttir
- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf og menning
- Flóahreppur
- Hafa samband
- English
- Viðburðadagatal
Torfdagurinn er hugsaður sem árleg hátíð og samráðsvettvangur áhugafólks á öllum aldri um aldagamla íslenska hleðslutækni og byggingararf og jafnframt vettvangur til að kveikja áhuga og nýsköpun á þessu svið; – sem hefur óþrjótandi möguleika.
Hvergi í heiminum hefur torf, grjót og mold verið fyrirferðarmeira byggingarefni í mannvirkjum en á Íslandi, allt frá landnámi upp úr 850 og fram undir seinna stríð 1940. Ganga má að því vísu að sé eitthvað handverk og verklag stundað óslitið í jafn langan tíma náist hámarks árangur með tilliti til efnistilfinningar og möguleika í útfærslum; og smíði og aðlögun verkfæra að fyrirliggjandi hráefni. Afar mikilvægt er að þetta handverk hafi vettvang til að þrífast og þróast inn í framtíðina.
Á Torfdeginumm verður um að ræða margvíslega myndræna framsetningu á torf og grjótveggjum, greiningu á vistkerfi mýrarinnar með tilliti til fuglalífs og einkennandi gróðurs og jarðvegseiginleika. Einnig hönnun verkefna sem hæfa yngsta aldurhópnum til að kveikja innsæi í aldagamlan arf. Þá verður boðið upp á “torfsúkkulaði” með kaffinu s. s. klömbruhnaus með matchatei þar sem grasið er.
Dagskrá Torfdagsins hefst kl. 14:00 þann 31. ágúst í safnahúsi Íslenska bæjarins að Austur Meðalholtum. Á dagskrá verður torfrista, torfstunga og veggjarhleðsla, sýning á torfhnausum og hefðbundnum verkfærum, umfjöllun um handbók um hleðsutækni, fyrirlestur um stærsta uppstandsndi vegg á Íslandi, kynning á fuglalífi og gróðurfari mýrarinnar og lykillplöntur í torfstungumýrum kynntar til leiks, staðbundum byggingumá keltneskum svæðum lýst, eldsmíði þar sem torfljár verður smíðaður, langspilsleikur, ljóð, teikning og leirmótun. Á borðum verður kaffi og grasate, kleinur, súkkulaðifuglar, og frumsmökkun á torfsúkkulaði.
Einstakir liðir dagskárinnar verða auglýstir sérstaklega þegar nær dregur á FB- og Instagramsíðum Íslenska bæjarins