HMS, Tryggð byggð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fundarröð um land allt um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur.
Í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga er boðað til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar á Suðurlandi. Fundurinn verður haldin á Fröken Selfoss þriðjudaginn 19. nóvember og hefst kl. 12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð.
Dagskrá:
- Staða íbúðauppbyggingar | Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar
- Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur á Suðurlandi | Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingar hjá HMS
- Byggjum í takt við þarfir | Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins
Fundarstjóri: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Staða íbúðauppbyggingar á Suðurlandi | Skráning
