Laust starf við stuðningsþjónustu / félagslega heimaþjónustu í uppsveitum og Flóa

Skóla og velferðarþjónusta Árnesþings
Skóla og velferðarþjónusta Árnesþings

Velferðarþjónusta Árnesþings óskar eftir starfsmanni við stuðningsþjónustu / félagslega heimaþjónustu í Uppsveitum og
Flóa

Um er að ræða allt að 80 % stöðu, viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst.

Einnig vantar starfsfólk í sumarafleysingu.Greitt er samkvæmt kjarasamningi Félags opinbera starfsmanna á Suðurlandi.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
▪ Almenn þrif
▪ Aðstoð við persónulega umhirðu
▪ Veita félagslegan stuðning og hvatningu
▪ Vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan þjónustuþega
▪ Hreint sakavottorð

Helstu hæfniskröfur:
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Hæfni til að starfa sjálfstætt
• Skilyrði að umsækjandi hafi reynslu af almennum heimilisstörfum
• Að vera 20 ára eða eldri og hafa bíl til umráða.
• Mælst er til að viðkomandi geti talað íslensku


Umsóknir berist fyrir 20.apríl nk. á sigrun@arnesthing.is 

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Símonardóttir í síma 480-1180 eða sendið fyrirspurn í tölvupósti á sigrun@arnesthing.is