Fyrirhugaðar malbikunarfræmkvæmdir á þjóðvegi 1

Dagana 26-27. júní er stefnt á að malbika báðar akreinar á Suðurlandsvegi austan við Selfoss.

Lokað verður fyrir umferð til austurs við Gaulverjabæjarveg og umferð send um hjáleið um Gaulverjabæjarveg(33), Önundarholtsveg(311) og Villingaholtsveg(305). Umferð á leið til vesturs ekur meðfram vinnusvæðinu og verður hámarkshraði lækkaður í 30km/klst. Merkingar og hjáleiðir verða settar upp.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 22:00 báða daga.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.