Frá Flóaljósi

Unnið var að viðgerð við ljósleiðara fram undir miðnætti og verður haldið áfram í dag. Búið er að lagfæra stofnleiðir fjarskiptafélaga inn í kerfi Flóaljóss sem er forsenda þess að notendur fái fjarskiptaþjónustu. Nokkur fjöldi notenda er enn sambandslaus. Notendur koma til með að fá aftur tengingu jafnóðum og þræðir eru tengdir saman og viðgerð vindur fram. Allir verða komnir í samband í lok dagsins.