Félagsráðgjafi í barnavernd/félagsþjónustu

 

Skóla-og velferðarþjónusta Árnesþings óskar eftir að ráða metnaðarfullan félagsráðgjafa í barnavernd/félagsþjónustu innan velferðarþjónustu í 80 – 100% stöðu. Unnið er í dagvinnu en æskilegt að viðkomandi geti tekið bakvaktir.

Félagsráðgjafi í barnavernd starfar að verkefnum sem krefjast sérfræðiþekkingar í vinnslu og meðferð barnaverndarmála. Starfið krefst víðtækrar þekkingar á sviði barnaverndar- og stjórnsýslulaga og úrræðum, bæði ríkis og sveitarfélaga. Auk barnaverndarmála getur verið um að ræða félagslega ráðgjöf við einstaklinga og málstjórn í farsæld barna.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og skráning tilkynninga og könnun/úttekt á aðstæðum barna
  • Vinna með fjölskyldum; viðtöl, ráðgjöf og stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
  • Skipulagning úrræða og aðgerða í samvinnu við samstarfsaðila
  • Vinnsla við fóstur- og vistunarmál
  • Markvisst samstarf við aðrar stofnanir og samþætting verkefna
  • Mat á hæfni fóstur- og stuðningsforeldra
  • Handleiðsla fyrir fósturforeldra, persónulega ráðgjafa og annað starfsfólk sem ráðið er af sviðinu vegna starfa innan barnaverndar
  • Félagsleg ráðgjöf til einstaklinga
  • Málastjórn í stuðningsteymum vegna farsældar barna
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf, eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi í barnaverndarþjónustu
  • Þekking og reynsla af barnavernd/velferðarþjónustu er mikilvæg
  • Reynsla af starfi með börnum og fjölskyldum er kostur
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, samstarfi og teymisvinnu
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Geta til að vinna unsir álgai í krefjnadi starffsumhverfi
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð almenn tungumála- og tölvukunnátta