
Nánar
Ungmennafélagið Vaka með Guðmundu Ólafsdóttur í broddi fylkingar, stóð fyrir gönguferð frá Þórsmörk að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi laugardaginn 17. júlí s.l.
Það var fimmtán manna hópur sem hittist við Þjórsárver kl. 9.00 og sameinaðist í bíla þaðan sem ekið var inn í Þórsmörk.
Hópurinn lagði af stað í blíðskaparveðri kl. 11.30 frá Básum og gekk sem leið lá yfir Kattahryggi, Heiðarhorn, Morinsheiði, Heljarkamb, upp Bröttufönn og þaðan að gosstöðvunum.
Hópurinn dvaldi í um eina klukkustund við gosstöðvarnar þar sem sjá mátti iðandi kviku með brennisteinslykt í vitum.
Nokkrir kusu að fara sömu leið til baka en flestir í hópnum fóru Hvannárgilsleiðina aftur niður í Bása.
Lagt var af stað heim á leið um kl. 20.00 eftir að meðfylgjandi mynd hafði verið tekin af ferðalöngum inn í Básum í lok ferðar.